Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Anna Steinunn frænka
Bestu fréttirnar í bænum!
Drífa Hrífa
Ekkiland
Emma Sól - Le Soleil
Frábær uppskrifasíða
Hannyrðahornið
Herdísin
Hraunvallaskóli
Háskólinn í Reykjavík
Hólmfríður frænka
Jamie Oliver
Júlíus og Helga
Kiddi trommbomm
Kjartan og Lovísa
Litli Ágústsson
Magnús Orri
Nigella
Norðlingaholtsblogg
Orðabók andskotans
Phooi Ling
Rósa Elísabet
Siggadís og Einsi
Stefán hversdags
Sorgarfréttir og skoðun hjá Ágústi
04.07.2008 10:02 - Lilja skrifar
Þegar við komum fram í morgunn var annar grái kettlingurinn dáinn. Við vorum aðeins búin að fylgjast með honum og tókum eftir að honum hafði ekki tekist að sjúga. Hann var ósköp lítill og horaður ræfillinn.
Við Ágúst fórum til læknis í morgunn. Hann var vigtaður og hæðarmældur, og allur líkaminn skoðaður. Hann er í ágætis formi, þyngdin í meðallagi og hæðin aðeins fyrir ofan meðallag. Læknirinn gat ekki séð en að það væri í lagi með eyrun, en sagðist myndi hringja til að fá tíma fyrir hann í talkennslu. Auk þess kom fram að hann væri með barnaexem. Ég hélt nú að hann klæjaði bara stundum, svona eins og þegar fólk þarf að klóra sér! En við eigum ágætis krem sem við getum notað á hann. Svo þurfum við að panta tíma á húðlæknastöðinni og láta skoðan svartan upphleyptan fæðingarblett sem hann er með á ristinni.
Svo fékk hann sprautu í lærið og þá var þetta búið og við gátum farið heim. Við vorum nú bara nokkuð ánægð með þetta og læknirinn var mjög fínn.

Jæja best að gera eitthvað - til dæmis fá sér kaffibolla!

Hefur þú eitthvað að segja?? (2 hafa tjáð sig, síðast Herdís)


Nýfæddir kettlingar!
02.07.2008 09:54 - Albert Elías skrifar
Í morgunn vaknaði ég við það að Snúlla kom upp í til mín og malaði og mjálmaði á mig. Ég kallaði í mömmu því mér fannst hún haga sér undarlega. Mamma kom og skoðaði Snúllu og sagði við mig að hún væri líklega að fara að gjóta kettlingunum!
Stuttu seinna var Snúlla lögst í kassann sinn og mjálmaði hátt og þá var allt í einu fæddur grár kettlingur! Síðan komu þeir hver af öðrum með nokkurra mínútna millibili. Næst kom lítill hvítur kettlingur, þá einn svartur og loks annar grár í lokin.

Nú liggja þau öll saman í hrúgu og eru að hvíla sig eftir átökin.

Hefur þú eitthvað að segja?? (8 hafa tjáð sig, síðast Hólmfríður)


Punktablogg
01.07.2008 11:00 - Lilja skrifar
Jæja þá. Loksins sumarfrí. Og frúin að verða sjálfri sér lík, allavega að mestu leyti!
Margt um að vera á næstunni, meðal annars þetta:
- Ágúst fer til barnalæknis á föstudaginn í annað sjónpróf og frekari eyrnaskoðun.
- Árni Dagur fær að halda smá partí á fimmtudaginn fyrir vinina í leikskólanum. Hakk og spaghettí og kaka í eftirmat.
- Árni fer sömuleiðis í 6 ára þroskaskoðun eftir nokkra daga. Ég á ekki von á öðru en að það komi glimdrandi vel út. Hann þarf þó að vera mjög nálægt sjónvarpinu ef hann er að horfa á eitthvað. Kannski þarf hann gleraugu?
- Árni og Ágúst eru komnir í langþráð sumarfrí eftir þessa viku í leikskólanum. Þeir verða fegnir að fá frí. Ágúst talar ennþá um að hann sé nógu stór til að labba einn heim af leikskólanum! Hann er ennþá í skærgulu sjálflýsandi vesti þegar hann er úti að leika. Og ef ég spyr hvar hann sé þegar ég kem að sækja hann, þá vita þær nákvæmlega hvar hann er!
- Albert er bara í fríi með mömmu sinni. Við fórum meðal annars á bókasafnið í gærmorgunn. Sátum svo í mestallan gærmorgunn og lásum heimsmetabók Guinnes frá 2007. Þetta er frábær bók fyrir krakka sem eru svona rétt orðin almennilega læs. Mikið af myndum og smátexti við hverja þeirra.
- Snúlla Hin Hvíta fitnar og fitnar. Stundum er hægt að greina hreyfingar á bumbunni. Verst að hún vill oft hanga undir bílunum á bílastæðinu. Í gærkvöldi kom hún inn öll í svartri smurningu - ekki beint sniðugt þegar hún er öll skjannahvít (eða ætti að vera það, en er sjaldan hrein!!).
- Horfði á ævisögu Johnny Cash í sjónvarpinu í gærkvöldi (Walk the line). Var mjög hrifin, þetta var frábær mynd og tónlistin frábær.

Og þá ætla ég að fara að gera eitthvað af viti. Íbúðin er smátt og smátt að breytast í sæmilega hreint og fínt húsnæði! Auk þess er ljúf rúgbrauðslykt í loftinu eftir nóttina. Namm namm.

Hefur þú eitthvað að segja?? (2 hafa tjáð sig, síðast amma SIGGA)


Kæru lesendur
29.06.2008 11:17 - Lilja skrifar
Vegna andlegrar þurrðar eftir síðasta kúrs þessarar sumarannar hefur bloggleysi verið nokkuð áberandi á þessari blessuðu síðu.
Þið bíðið vonandi þolinmóð þar til bloggandinn kemst aftur í huga frúarinnar!


Hefur þú eitthvað að segja?? (1 hefur tjáð sig, síðast Herdís)


Hlaupahjól í hausinn!
24.06.2008 10:29 - Ágúst Örn skrifar
Í gær var ég úti að leika í leikskólanum. Það var voða gott veður. Ég sat og var að leika mér þegar allt í einu ég fékk hlaupahjól í hausinn. Ég nuddaði eitthvað á mér höfuðið en hélt svo áfram að leika mér. Svo skildi ég ekkert í því að höndin á mér varð bara rauð og svo lak eitthvað rautt niður á fötin mín. Hilma (Himma) vinkona mín kom hlaupandi og sá að ég hafði meitt mig og hún fór með mig niður á heilsugæslu. Ég var voða niðurlútur en sagði ekki neitt og sýndi engin svipbrigði. Aumingja Hilma hringdi í mömmu í ofboði því hún hélt að ég væri bara að lognast út af! Mamma greyið kom askvaðandi eftir dálitla stund, enda hafði hún verið nýkomin út á Seltjarnarnes þegar Hilma hringdi. Ég sýndi heldur engin svipbrigði þegar mamma kom og ekki heldur þegar ég var deyfður eða þegar þetta eina spor var saumað með fagurbláum þræði! Svo skildi ég ekkert í því að Anna Gréta frænka var allt í einu komin að heilsa upp á mig, en þá var hún bara í vinnunni sinni í næsta herbergi!
Þegar þetta var afstaðið og ég kominn út í bíl með mömmu, þá allt í einu losnaði um málbeinið á mér og ég fór að tala og tala. Ég þurfti ofsalega mikið að segja henni frá þessu öllu og öllu sem ég hafði verið að gera í leikskólanum - reyndar fylgdi nú sögunni minni að einhver hefði hent hlaupahjólinu í mig, en mamma trúir því nú mátulega!
Svo fór ég í bað þegar ég kom heim, enda var nánast allt hárið á mér blóðugt, andlitið og hendurnar líka. Og það var ekki að sjá né heyra á mér að neitt hefði komið fyrir! Ég kvartaði samt þegar mamma strauk yfir kollinn minn, en það gerir hún oft svona í hugsunarleysi ef ég labba fram hjá. Það fannst mér ekki gott!
Svo fór ég í leikskólann í dag með Árna, og við verðum til fjögur núna í þrjá daga meðan mamma er að klára skólann sinn. Leikskólastjórinn sagði að það væri nú ekki mikið mál og að við þyrftum ekki að borga neitt aukalega - þetta væri svona bónus fyrir hvað við værum búnir að strjúka oft!!

Hefur þú eitthvað að segja?? (1 hefur tjáð sig, síðast Herdís)


Afmæli!
23.06.2008 08:36 - Lilja skrifar
Þessi hugljúfi og fallegi drengur er hvorki meira né minna en sex ára í dag. Við óskum honum til hamingju.
Þessi mynd er tekin stuttu fyrir jólin 2003 svo að hann er rétt um eins og hálfs árs á henni.

Ps. Helgan okkar Hjörleifsdóttir átti líka afmæli í fyrradag - Til hamingju Helga okkar!

Hefur þú eitthvað að segja?? (3 hafa tjáð sig, síðast Herdís og Karólína)


Við mamma í göngutúr
20.06.2008 09:47 - Árni Dagur skrifar
Mamma tók þessa mynd af mér í göngutúr sem við fórum í um daginn

Hefur þú eitthvað að segja?? (1 hefur tjáð sig, síðast Herdís)


Mamma er að verða amma!
20.06.2008 09:47 - Ágúst Örn skrifar
Þarna er mamma mín með einn kettlinginn sem við máttum halda á í dýragarðinum í Slakka. Þangað fórum við á 17. júní. Hún þarf nú að æfa sig kellingin, enda fer Snúlla læðan okkar (og Kristjáns frænda!) bráðum að fara að gjóta!

Hefur þú eitthvað að segja?? (2 hafa tjáð sig, síðast Erlingur Sverige)


Við mamma í göngutúr
20.06.2008 09:46 - Árni Dagur skrifar
Við mamma skruppum í göngutúr eitt kvöldið í vikunni. Ég var alltaf að biðja hana að taka mynd af mér!

Hefur þú eitthvað að segja?? (1 hefur tjáð sig, síðast Herdís)


Ég og Natan vinur minn
20.06.2008 09:45 - Albert Elías skrifar
Hér er ég með Natani góðum vini mínum, rétt áður en afmælisveislan mín byrjaði. Við mamma buðum fullt af krökkum úr bekknum mínum upp á hakk, spaghettí og brauð. Svo fóru allir út að leika og mamma kom svo út með afmæliskökuna og allir fengu köku úti! Þetta var alveg frábært afmæli!

Hefur þú eitthvað að segja?? (1 hefur tjáð sig, síðast Herdís)


17. júní
20.06.2008 09:44 - Lilja skrifar
Á 17. júní fórum við í dýragarðinn í Slakka. Þessi mynd af bræðrunum var tekin þar.

Hefur þú eitthvað að segja?? (1 hefur tjáð sig, síðast Herdís)


Myndir
01. október 2006
22. ágúst 2006
17. ágúst 2006
15. ágúst 2006
12. ágúst 2006
08. ágúst 2006
05. ágúst 2006
02. ágúst 2006
08. júní 2006
28. maí 2006
24. maí 2006
18. apríl 2006
14. apríl 2006
24. febrúar 2006
23. janúar 2006
04. janúar 2006
07. júlí 2005