Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Anna Steinunn frænka
Bestu fréttirnar í bænum!
Drífa Hrífa
Emma Sól - Le Soleil
Grindavíkurpakkið
Hannyrðahornið
Herdís júnka
Hraunvallaskóli
Háskólinn í Reykjavík
Júlíus og Helga
Kiddi trommbomm
Magnús Orri
Orðabók andskotans
Phooi Ling
Rósa Elísabet
Saumakona bloggar
Stefán hversdags
Loksins vanagangur!
13.05.2008 09:55 - Lilja skrifar
Áttum fremur rólega helgi hér á Völlunum, enda fjölskyldan ennþá að ná sér eftir pestarfjandann!
Kristján frændi okkar gisti hér tvær nætur og skemmtu bræðurnir sér vel við að leika við hann.
Við náðum þó að afreka að kíkja á fínu íbúðina hjá Hjördísi og Óla, en þar er verið að leggja lokahönd á slotið, og trúlega geta þau hjónin flutt inn með nýstækkuðu fjölskylduna núna í vikunni. Hjördís kom svo með Benjamín og Ísak til okkar í mat um kvöldið (á meðan Óli var að parketleggja). Sá minnsti (Ísak, bara rétt 3ja vikna) var vel vakandi og stóru frændur hans þrír höfðu gaman af að skoða hann og sjá hvað hann er allur lítill og yndislegur! Ágúst hafði á orði hvað hann væri nú sjálfur orðinn stór, miðað við þetta litla kríli!
Svo í morgunn var kominn tími til að fara með hersinguna í skólana sína, í fyrsta skipti í heila viku! Árna Degi var tekið fagnandi inni á sinni deild, ekki skemmdi fyrir að í ljós kom að kettirnir tveir sem voru búnir að vera að skemmta krökkunum þar fyrr um morguninn, voru í raun kettirnir okkar!
Ágúst var dálítið feiminn eftir að hafa verið svona lengi í burtu, en Gústaf, Snorri og Eyjólfur tóku vel á móti honum.
Í dag byrjar svo nýtt námskeið hjá mér, það næstsíðasta á þessari önn: Rannsóknir á börnum og unglingum. Hljómar mjög áhugavert! Hlakka tilað fara aftur í skólann eftir öll þessi veikindi!

Ps. Hann Kristján Stórfrændi okkar varð 11 ára þann 6. maí, og í dag á mamma hans hún Kristín afmæli (aldur er ekki gefinn upp!). Við óskum þeim báðum til hamingju með daginn!

Hefur þú eitthvað að segja?? (engin hefur tjáð sig. Vertu fyrst/ur!)


Það hlaut einhvern tímann að koma að því...
08.05.2008 19:04 - Lilja skrifar
Svo virðist sem pestardjöfullinn sé á undanhaldi. Hér hefur fjölskyldan legið flöt í vikutíma, bæði með horlæki, eyrnabólgur, hósta, niðurgang og uppköst og lítur út fyrir að eitthvað sé mönnum og konu að batna. Strákar voru þó allir mjög heitir í nótt og þurftu allir oft að koma upp í til mömmu sinnar og fá smá knús og vatnssopa. Árni Dagur átti erfitt með svefn og vakti í vel á þriðja tíma. Albert var glaðvaknaður rúmlega sex og kastaði upp lungum og lifur. Ágúst var kominn fram um hálf 8 leytið en Albert sofnaði aftur og vaknaði ekki fyrr en með Árna Degi klukkan að verða ellefu!
Í dag voru þó allir hálf lúnir og slappir og lágu mestmegnis fyrir í sófum heimilisins. Ari Páll gerðist þó svo brattur að drífa sig í vinnu eftir hádegið.
Frúin sjálf er smátt og smátt að skríða saman, en hægt gengur það! Stífluðu holurnar í hausnum á henni gera það að verkum að henni finnst sem hún hafi fengið sér nokkra bjóra!
Þetta er þó allt í áttina!

Ég skal ljótur hundur heita ef þetta verður ekki síðasta pestin sem sækir okkur heim á þessu vori! Sveiattan bara!

Hefur þú eitthvað að segja?? (engin hefur tjáð sig. Vertu fyrst/ur!)


En það ástand!
05.05.2008 20:51 - Lilja skrifar
Þær ætla aldeilis ekki að sleppa af okkur krumlunni, bévítans pestarnar! Ég minnist þess ekki að áður hafi það komið fyrir að öll fjölskyldan hafi legið í rúminu með allar mögulegar bólgur og horlækina rennandi niður eftir öllu!
Þetta hefur semsagt verið tilfellið síðustu tvo daga - og meira að segja annar bíllinn fékk einhverja flensu líka og þarf einhvers konar meiriháttar læknisþjónustu.
Annars eigum  við tíma hjá lækni á morgunn í hlustun og allt mögulegt. Vonandi fáum við bara bót meina okkar í eitt skipti fyrir öll!
Að öðru leyti hafa allir verið nokkuð sprækir. Við fengum Hjördísi og stórfjölskyldu í heimsókn í síðustu viku, og sáum Ísak Guðmundsson í fyrsta skipti. Hann var auðvitað yndislegur og svaf á sitt græna mest allan tímann.
Annars er algert andleysi ríkjandi, og ekki nokkur leið fyrir andann að koma yfir mann, svona þegar flensuandinn ræður ríkjum!
Skrifum meira síðar - nú þarf að nota alla orku í að láta sér og börnunum batna!



Hefur þú eitthvað að segja?? (2 hafa tjáð sig, síðast Hólmfríður)


Smá viðbót
29.04.2008 21:03 - Lilja skrifar
Það gleymdist auðvitað að nefna að Ragna, Kjartan og Lovísa fengu það verkefni að hugsa um prinsana þrjá á meðan við hjónin skruppum til Afríku!
Mér skildist bæði á fullorðnum og börnum að allt hefði gengið vel og allavegana börnin skemmt sér konunglega.
Það er nú erfitt að þakka fyrir svona stórkostlegan greiða, enda gerði þetta okkur kleift að upplifa ótrúlegt ævintýri!

Annað sem gleymdist að nefna í síðustu færslu: Hjördísi og Guðmundi Óla hefur fæðst annar sonur. Fyrir eiga þau hann Benjamín sem er þriggja ára. Sá nýji hefur verið nefndur Ísak, Benjamín til mikillar mæðu, en hann vildi auðvitað að litli bróðir héti líka Benjamín! Allt gekk eins og í sögu og við óskum stórfjölskyldunni innilega til hamingju!

Ásdís frænka okkar átti líka afmæli fyrir örfáum dögum og varð 8 ára, eins átti Dísa vinkona okkar afmæli um svipað leiti. Við óskum þeim báðum ægilega mikið til hamingju með afmælin sín.


Hefur þú eitthvað að segja?? (engin hefur tjáð sig. Vertu fyrst/ur!)


Ævintýraferðin búin!
28.04.2008 21:40 - Lilja skrifar
Þá erum við hjónakornin komin úr ótrúlegri ævintýraferð í Marokkó. Manni skortir orð til að lýsa þessari upplifun, kannski má líkja ferðinni saman við að fara aftur í tímann nokkur hundruð ár og vera staddur í einhvers konar ævintýri. Það sem á daga okkar dreif var meðal annars þetta:

Borðuðum á veitingastað sem var allur mósaíkskreyttur. Lifandi tónlist (tveir uppábúnir aldraðir menn með einhvers konar trommu og gítar) og magadansmær. Ari Páll smakkaði meðal annars dúfnaböku.

Markaðurinn "Souks" samanstóð af ótrúlegu völundarhúsi pínulítilla skúmaskota þar sem sölumenn sýndu vörur sínar. Leður, silfur, skrautlegir kúskúsdiskar, Tagínur (pottar með toppmjóu loki), krydd og teppi. Við vorum orðin ágæt í að prútta!

Stundum hljóp barn í veg fyrir okkur og fór t.d. í handahlaup. Svo báðu þau um pening.

Ekki var hægt að taka mynd af neinum nema borga honum fyrir. Sérstaklega þykir dónalegt að taka mynd af konum.

Marokkóskt myntute er verulega gott og við drukkum það oft í 38 stiga hitanum!

Fundum eina leikfangaverslun, en hún var mun dýrari en leikfangaverslanir hérlendis!

Hótelið var fimm stjörnu hótel. Maður þurfti ekki einu sinni að opna hurðarnar!

Umferðin í Marrakech er sjúkleg. Þar ægir saman hestvögnum, mótorhjólum og bíldruslum. Stundum sáum við menn keyra um á mótorhjólum með kornabarn í fanginu! Úff.....

Mjög mikið af villiköttum úti um allt. Þeir vita hvar á að leita að mat og fá að hlaupa óáreittir um inni á veitingastöðum.

Við fórum einn dag og lærðum að elda ekta marokkóskan rétt: Kjúklingatagínu með "preserved lemon" (sítrónur sem eru búnar að liggja í saltlegi í marga mánuði). Auk þess borðuðum við lambakjöt með sveskjum og möndlum, kúskús með grænmeti, harirasúpu (ekta marokkósk súpa!), drukkum mikið af nýkreistum appelsínusafa og uppgötvuðum svakalega góðan og einfaldan eftirrétt: nýkreistur appelsínusafi með tveimur vanilluískúlum út í. Smá rjómatoppur ofan á. Æðislega gott!

Árshátíðin var ævintýri út af fyrir sig. Algjörlega ólýsanlegt. Hún fór fram í stóru tjaldi fyrir utan borgina. Á móti okkur tók röð af uppábúnum marokkóskum tónlistarmönnum. Kameldýr og hestamenn með langar byssur. Frábær matur, góð þjónusta og ótrúleg skemmtileg skemmtiatriði! Magadansmeyjar, tónlist og fleira og fleira - eins þjóðlegt og það gat orðið.


Hvað getur maður sagt? Þetta var ógleymanleg ferð.



Hefur þú eitthvað að segja?? (4 hafa tjáð sig, síðast Siggadís)


Sæludagar
22.04.2008 08:23 - Lilja skrifar
Nú erum við búin að eiga ógleymanlega daga með frönsku fjölskyldunni og ótrúlegt að þeir séu að fara af landi brott á morgunn (og við Ari Páll líka!). Mikið er búið að keyra um og fara í göngutúra, og við vorum svo heppin að fá sumarbústað á Flúðum lánaðan um síðustu helgi. Við skoðuðum Gullfoss og Geysi, sáum Strokk gjósa nokkrum sinnum við mikla gleði nærstaddra, komum við á Þingvöllum og fórum í göngutúr, og í gærkvöldi var farið út að borða í tilefni af afmæli Ara Páls.
Þetta er allt búið að vera ægilega ljúft og skemmtilegt, og eins og best verður á kosið. Krakkarnir hafa leikið sér saman eins og þau hafi aldrei gert annað og merkilegt hvað strákarnir náðu að babbla á frönskunni eftir allan þennan tíma!
En ekki dugar að slaka á í skólanum, nú er bæði stórt  hópverkefni og einstaklingsverkefni í algleymingi, og ferð til Marokkó annað kvöld! Vonandi verða litlu lúsirnar tvær (Árni Dagur og Ágúst Örn) orðnir hressir af leiðinda flensuskít með tilheyrandi hita, grænu hori og hósta! Kjartan, Lovísa og Ragna ætla að sameina krafta sína á meðan við hjónin stingum af í annan heim annað kvöld og sjá um litlu grísina (og kettina) sem eftir verða!

Nóg í bili, tveir heitir hóstandi drengir og verkefni sem á að skila eftir nokkra klukkutíma kallar!

Hefur þú eitthvað að segja?? (2 hafa tjáð sig, síðast Drífa Þöll)


Lily og Zoé eru komnar!
17.04.2008 10:47 - Albert Elías skrifar
Í gær var ég heima með rosa mikla magapínu. Kannski var ég bara svona spenntur yfir gestunum sem voru á leiðinni! En ég var samt alltaf á klósettinu og hafði enga matarlyst, þannig að ég var örugglega eitthvað lasinn líka. Svo um kaffileytið, þegar ég var búinn að horfa út um gluggann í lengri tíma sá ég loksins pabba koma heim með gestina okkar! Mér varð svo mikið um að ég öskraði og gargaði út um gluggann og hoppaði og skoppaði eins og gormur! Svo hljóp ég út til að taka á móti þeim! Það var eins og við Zoé (sem var með mér í bekk í Champ de Foire skólanum í Meximieux) hefðum hist í gær! Við fórum strax að leika okkur. Árni Dagur og Ágúst voru dálítið feimnir fyrst, en svo voru allir farnir að leika sér eftir smá stund.

Ég er voða glaður, og vildi alls ekki fara í skólann í morgunn. Þangað þurfti ég nú samt að fara, og öll fjölskyldan fylgdi mér til að sjá skólann minn! En svo er Árni Dagur heima í dag, með hita og hálsbólgu.

Ps. Við fengum lánaðan sumarbústað um helgina, hann er á Flúðum. Jibbí það verður gaman! Vonandi kemst mamma með, hún er að verða skrítin af stressi yfir öllum verkefnunum í skólanum og veikindunum í okkur strákunum! Og svo þykist hún líka ætla til Marokkó um næstu helgi! Æi, vonandi tekst henni að klára þetta allt án mikilla vandræða!

Hefur þú eitthvað að segja?? (1 hefur tjáð sig, síðast amma Sigga)


Ævintýri
13.04.2008 11:31 - Árni Dagur skrifar
Það var sko gaman hjá okkur á föstudaginn! Mamma sótti mig og Ágúst í leikskólann og svo náðum við í Albert og fórum í vinnuna hans pabba. Þar fengum við epli og vatnsflösku og fórum svo aftur í bílinn og keyrðum lengi. Svo komum við í stórt hús og fórum þar inn með fullt af fólki úr vinnunni hans pabba og krökkunum þeirra. Inni í húsinu sem við fórum í var verið að búa til sjónvarpsþátt um Latabæ! Við sáum Íþróttaálfinn og Sollu stirðu. Svo talaði Íþróttaálfurinn við okkur og labbaði á höndum! Svo fengum við að skoða allt; skipið sem Íþróttaálfurinn á, brúðurnar sem eru notaðar í þáttunum og margt margt fleira! Okkur fannst þetta svakalega skemmtilegt og gaman að sjá allt Latabæjardótið úr þáttunum! Svo þegar við vorum búnir að skoða allt vel og vandlega fórum við aftur í bílinn og pabbi keypti ís með dýfu handa okkur.
Núna er ég búinn að leika við Ágúst í allan morgunn. Við máttum ekki einu sinni vera að því að klæða okkur! Karólína vinkona okkar sem heimsótti okkur í gær með Herdísi mömmu sinni byggði svo flott hús og svo vorum við að leika með það í morgunn. Það var mamma að elda matinn inni í húsinu, pabbi að svæfa litla barnið, og stóri bróðir að horfa út um gluggann. Svo byggði ég bílskúr við húsið því að fjölskyldan þurfti að eiga bíl til þess að geta farið í bíltúr og keypt ís með dýfu....


Hefur þú eitthvað að segja?? (1 hefur tjáð sig, síðast amma Sigga)


Um helgina....
08.04.2008 10:12 - Árni Dagur skrifar
.... fannst mér vanta merkimiða á herbergin okkar bræðranna. Ég sótti því blað og rauðan penna og skrifaði: svemnherbeki á svefnherbergið okkar bræðra, og dótaherbeki á dótaherbergið okkar. Svo bað ég mömmu að hefta saman nokkur blöð fyrir mig. Framan á þau skrifaði ég: Bókin um Árna. Svo skrifaði ég inn í bókina: Ég hopaði á gólvið og ég meiti mig. Og ég var að popa og ég horþi á gólviþ og ég fór í wi i 3 kukutima. Endir.
Í gær var stærðfræði í skólanum mínum, og ég var fljótastur að reikna og reiknaði allt rétt.

Ps. Afi Albert á afmæli í dag. Vonandi bakar amma Sigga handa honum afmælisköku með miklu kremi og risastóru kerti. Ég veit ekki hvað hann er gamall, en hann getur ekki verið jafn gamall og afi Gissur sem er 99 ára!
Til hamingju afi!

Hefur þú eitthvað að segja?? (2 hafa tjáð sig, síðast KB Eiðum.)


FRÍ!!!
07.04.2008 08:32 - Lilja skrifar
Laaaaaangþráð frívika runnin upp! Bara einn yfirlestur eftir á verkefninu og þá hef ég heila viku til að hugsa um eitthvað annað en skóla.
Á döfinni:
Skjótast og kaupa nokkur box í Ikea
Fara á bókasafnið og finna skemmtilega bók. Var að klára Þúsund bjartar sólir, kannski tek ég þá bara Flugdrekahlauparann núna. Langt síðan ég hef lesið jafn frábæra bók og Þúsund bjartar sólir...
Aðeins að taka til og fara yfir húsið
Fara út í góðan göngutúr
Sækja strákana mína og baka afmælisköku "fyrir þá" til að hafa í kaffinu (verður alltaf að vera afmæliskaka þó maður sé fullorðinn!!)

Fórum annars seinni partinn í gær í göngutúr og borðuðum svo á Friday's í Smáralind. Varð fyrir vonbrigðum og get ekki mælt með þeim stað! Ari Páll fékk svínarif og sósu (og ekkert annað með, ekki einu sinni bakaða kartöflu!), ég fékk harðan og hálfkaldan pastarétt, og strákarnir hamborgara og á honum var ekki einu sinni sósa!
Hitti svo Önnu Grétu í gærkvöldi og fékk mér tebolla og kökusneið! Alveg indælt eins og alltaf!

Jæja, *over and out* best að koma sér í frígírinn!

Hefur þú eitthvað að segja?? (7 hafa tjáð sig, síðast Hjördís)


Er vorið komið?
06.04.2008 09:31 - Lilja skrifar
Svei mér ef þá ef vorið er ekki bara að bresta á!

Heilsufar fjölskyldunnar: Gott

Verkefnastaða: Góð. Ein spurning eftir í síðasta verkefninu! Hún er reyndar dálítið löng, en vonir standa til að klára þetta í dag og svo hefst mjög svo langþráð frí í heila viku!!

Það eru nokkrir búnir að eiga afmæli:
Hólmfríður frænka átti afmæli í gær.
Alfreð Karl frændi minn átti afmæli í fyrradag.
Birna Björnsdóttir hefði orðið 67 ára í gær, hefði hún lifað. Blessuð sé minning hennar.

Öllum er auðvitað óskað til hamingju.
Já og Ari Páll fór og keypti grill í gær. Grilluðum í fyrsta skipti í gærkvöldi síðan sumarið 2006. Það var gott og allir höfðu fína matarlyst, nema Ágúst sem heimtaði bara banana!

Jæja bless í bili, yfir mér er enginn andi nema skólaandi. Í nótt hrökk ég upp hvað eftir annað við einhverjar villur í "output"-um úr SPSS og eilífar pælingar um skýrða dreifingu og marktektarpróf!!

Það verður sko partí þegar þetta verður búið!!! Hver mætir???

Hefur þú eitthvað að segja?? (1 hefur tjáð sig, síðast Herdís)


Myndir
01. október 2006
22. ágúst 2006
17. ágúst 2006
15. ágúst 2006
12. ágúst 2006
08. ágúst 2006
05. ágúst 2006
02. ágúst 2006
08. júní 2006
28. maí 2006
24. maí 2006
18. apríl 2006
14. apríl 2006
24. febrúar 2006
23. janúar 2006
04. janúar 2006
07. júlí 2005